Faxaborg Borgarnesi Reiðhöll á félagssvæði Hmf. Borgfirðings |
|
UmgengnisreglurHandhafar árs- og mánaðarkorta hafa ótakmarkaðan aðgang að höllinni þegar hún er ekki í annarri skipulagðri notkun t.d. námskeið og sýningar. Miðað er við að höllin geti verið í notkun frá kl. 08:00 til 22:00. Fullorðnir handhafar árs- og mánaðarkorta mega hafa börn sín undir fermingu með sér í höllinni án þess að greiða fyrir þau. Börnin mega ekki vera ein í höllinni og eru þar ávallt á ábyrgð foreldranna. Handhafar árs- og mánaðarkorta hafa aðgang að sal hallarinnar en ekki öðrum rýmum hennar. Miðað er við að hver og einn sé ekki lengur en einn klukkutíma í höllinni í senn bíði aðrir eftir því að nota höllina. Heimilt er að fjórir ótengdir aðilar þ.e. handhafar árs- og mánaðarkorta séu í höllinni í einu. Þeir sem keypt hafa einkatíma í höllinni hafa hana einir til umráða. Notendur hallarinnar skulu ganga snyrtilega um m.a. þrífa upp hestaskít eftir sína hesta og annað rusl. Óheimilt er að hafa hrossin laus í reiðhöllinni. Verði notendur uppvísir að slæmri umgengni er stjórn hallarinnar heimilt að banna þeim afnot af höllinni. Séu þeir búnir að greiða fyrir afnot af höllinni fram í tímann fá þeir það ekki endurgreitt. Notkun á hesthúsi yfir nótt er ávallt háð samþykkis/leyfis frá stjórn. Bæði notendur hallarinnar og gestir eru ávallt í höllinni á eigin ábyrgð. Notendur hallarinnar skulu sýna hver öðrum tillitssemi og vera öðrum til fyrirmyndar í hvívetna. Hjálmskylda er í höllinni. Reykingar og notkun annnarra vímuefna eru stranglega bannaðar í reiðhöllinni. Stjórn hallarinnar hefur ávallt heimild til að taka höllina undir sýningar eða aðra starfsemi og verða þá almennir notendur að víkja. Stjórn Selás ehf. |
Farsími: 8984569Tölvupóstfang: borgfirdingur@borgfirdingur.is |
© 2021 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is